Speed Dial No.2
Life ends at 30
25.10.05
21.10.05
Letin búin
Jæja nú er best að fara að röfla eitthvað hérna aftur. Maður hefur reyndar ekki mikinn tíma núorðið en fyrst maður er á annað borð með þetta blogg þá er best að nota það eikkað smá. Helstu fréttir eru bara þær að ég eignaðist litla frænku um daginn :)
11.7.05
4.7.05
Titill..
Ótrúlegt hvað ég nenni engu í dag. Nennti ekki að vakna í morgun. Nennti ekki framúr á réttum tíma. Nennti ekki í ræktina. Nennti ekki að fá mér að éta í hádeginu. Nenni ekki að vera í vinnunni.
Ég ætla samt að nenna í ræktina á eftir. Verð að fá daglega serótónín og endorfín skammtinn minn. Annars drepst ég úr leiðindum. Svo er ég líka farinn að sjá magavöðvana mína aftur (hæ magavöðvar). Vil samt sjá meira af þeim þannig að þá er best að vera blóðugt duglegur.
Það er að styttast og styttast í að skólinn byrji. Ótrúlegt en satt þá hlakkar mig til. Þótt að ég hafi alls ekki efni á því að fara í dagskóla þá held ég að það reddist. Eða ég vona það. Sótti um LÍN og mér reiknast svo til að ég fái 5 þúsund krónur í framfærslu á mánuði. Frábært. Hvernig væri að breyta helvítis sýsteminu þannig að maður geti kannski hugsanlega farið í skóla þótt maður hafi verið með ágætis tekjur.. Halló!
Var líklega ekki búin að blogga um það en Marc vinur minn frá Brandararíkjunum er að koma á klakann í lok júlí og verður í rúma viku. Ég hlakka til (!!!). Þannig er mál með vexti að hann hefur aldrei stigið sínum amerísku tám á erlenda grundu. Ætti því að vera skrítið fyrir hann að koma hingað. Eða ekki, við erum svo amerísk hérna að sumu leiti.
Prump
Ömurlegur dagur. Nenni bara ekki að vinna. Helgin var bara alltílagi, djamm á föstudagskvöld með Heiðu og Grím. Mjög skrítið situation inná Sirkus þar sem Björgólfur júníor mætti með herskara af uppaliði dauðans. Þetta lið átti ekki alveg heima þarna. Brjáluð þynnka á laugardeginum. Held að ég hafi barasta ekki gert neitt þann dag.. jú fór aðeins út..
Sunnudagurinn var hinsvegar bara fínn. Hékk með Sigurjóni DK og Magga, tókum góðan pool og fengum okkur gott að éta. Fyndið hvað Sigurjón er orðin mikill fjölskyldumaður. :)
Jæja það er allaveganna að styttast í útileguna góðu sem verður næstu helgi. Stefnir í megadjamm alveg. Samt er ekki búið að ákveða hvert á að fara en það skýrist líklega í vikunni.
Leiðinlegt að segja það en ég er að verða býsna leiður á djamminu. Of mikið af því góða líklega. En hvað hefur maður svosum annað að gera um helgar?
1.7.05
War of the Worlds
Jæja fór í bíó í gær og sá War of the Worlds. Fílaði myndina í botn. Skemmtilegt hvað Spílberginn var faithfull gömlu sögunni þrátt fyrir að myndin gerist í nútímanum en original sagan um aldamótin þarsíðustu. Það sem fór eiginlega mest í taugarnar á mér var að maður fékk bara ekki að sjá blessaðar geimverurnar nógu mikið.
En allaveganna þá er föstudagur og greinilega djamm í kvöld. Heiða er á landinu og ætli maður reyni ekki að plata hana út í bjór.
30.6.05
Ræktin
Jæja nú er komið að því að uppa sig upp í að fara tvisvar hvern virkan dag í ræktina.. búnað vera að fara einusinni á dag og það er komið upp í vana. Núna byrjar púlið :/ Nei nei þetta verður gaman. Verst að maður þyrfti að fara um helgar líka en það er víst ekki hægt þegar maður er alltaf djammandi eins og fáviti. Djöfull er ég búnað missa niður allt þol. Ég varla get púlað í 30 mínútur en fyrir 4 árum fann maður ekki fyrir því að púla í 60-90 mínútur í einu.
Erfiðast verður að venja sig á að borða meira. Þarf víst að gera það ef ég ætla að massa mig aðeins upp. Maður hefur samt ekki tíma til að vera borðandi 8 sinnum á dag!!
Var samt alveg búnað gleyma hvað það er hressandi að byrja daginn á því að fara í ræktina. Manni líður svo rosalega vel.
Eitt sem ég var búnað gleyma við það að hreyfa sig svona mikið var að kynþörfin eykst alveg gríðarlega.. En kannski ætti ég svosum ekki að vera að ræða það mikið hér :)
Og svo er það víst næst á dagskrá að hætta að reykja. Veit ekki alveg hvaða tækni ég á að nota við það. Er einhver með góða hugmynd? Ég er búnað prufa tyggjó, plástra og pillurnar. Kannski ætti maður að prufa dáleiðslu? Eða bara kaldan kalkún? Eigilega mest á því að fara bara á kaldan kalkún.. ódýrast og tekur stystan tíma en er bara lang erfiðast.. :/
Viðauki: Pabbi segir "Kaldur kalkúnn" á þetta. Virkaði fyrir hann og hann hefur ekki reykt í fleiri fleiri ár. Mamma líka..
Góð saga
29.6.05
Hm.. stórar ákvarðanir
Jæja, nú er maður mikið að spá og spögilera í framtíðinni sinni. Nánast búinn að taka ákvörðun um að fara í 100% skóla í haust til að klára þetta helvíti. Vinna síðan bara svona sircabout 30% vinnu með. Það gera 130%. Hvenær á ég að djamma? Bömmer.
Það sem verður eiginlega verst er að maður þarf að læra að eyða ekki um efni fram. Fara út að skemmta sér og fara ekki á barinn. Guð minn góður.
Hef í raun ekkert efni á þessu en ég ætla líklega að láta reyna á þetta. Maður verður að útskrifast einhverntíman. Svo er bara stefnan sett á eitthvað skemmtilegt í framhaldinu. Fara í eitthvað mega kríeitíft nám. Dreymi enn um að fara í Listaháskólann en það er spurning hvort maður getur einhverntíman leyft sér það. Svo er náttúrulega draumurinn um að fara út alltaf mjög sterkur.
Kemur alltsaman í ljós. Einblína bara á það að klára blessaðan skólann fyrst.
